Søk / Search / Suchen / Recherche
Adresse:
Medisinsk Helsesenter AS
Brakanes
5730 Ulvik, Norway
tlf. +47 56526505
fax + 47 56526770
post@medhelse.no
medhelse-hard

Upplýsingar um Biofeedback (lífræna endursvörun)

medhelse8-1

Medisinsk Helsesenter AS
býður sjúklingum sínum upp á þjálfun í biofeedback (lífrænni endursvörun) og neurofeedback (taugaendursvörun). Til að biofeedbackæfingarnar skili sem bestum árangri er mælt með að minnsta kosti 20 tímum. Dr. Geir Flatabø
er sá læknir á Norðurlöndum sem hefur mestu og víðtækustu reynsluna af þessari þjálfun. Hann hefur meðal annars menntað sig í London, Los Angeles, Prag, München og St. Pétursborg. Hann hefur unnið með biofeedback síðan árið 1999.


HVAÐ ER BIOFEEDBACK/NEUROFEEDBACK?

Biofeedback er orð yfir mismunandi æfingar sem að ganga út á að hafa áhrif á ómeðvitaða og ósjálfráða líkamsstarfsemi. Þannig getur viðkomandi stjórnað henni sjálfur. Með ólíkum aðferðum er hægt að stjórna beint og óbeint blóðþrýstingi, líkamshita, vöðvaspennu, vöðvalömun, krampa (flogaveiki), verkjum, athyglisbresti (ADHD) og geðrænum einkennum, s.s. ótta, óróa og þunglyndi.


Með Neurofeedback sér sjúklingurinn með aðstoð tölvuforrits heilalínurit sem tákn á tölvuskjá. Þegar ritið er sýnt þannig, getur sjúklingurinn breytt því. Og af þeim sökum breytist líkamsstarfsemin einnig. Sem dæmi getur flogaveikur maður þjálfað burt gallana í heilastarfseminni, og þar með þjálfað burt flogaveikina. Þar sem þetta er eitthvað sem maður lærir er það varanlegt, á sama hátt og þegar maður lærir að hjóla. Semsagt, maður kann það alltaf!


Traustar vísindalegar rannsóknir sýna áhrifin sem biofeedbackþjálfun hefur á athyglisbrest, flogaveiki, taugaáfall, einhverfu, heilablóðfall/lömun og eiturlyfjavandamál. Fyrstu rannsóknirnar voru gerðar á köttum, sem voru tilraunadýr og þeir ”þjálfuðu flogaköstin í burtu”.


Við þetta nýtist sá stóri hluti heilans sem ekkert er notaður, og sá mikli sveigjanleiki sem hann býr yfir, til að breyta hugsunar- og hegðunarmynstri sem er innprentað í okkur. Neurofeedback getur virkað sem leið frá erfiðu og óþægilegu ”taugalandslagi” yfir í að tileinka sér það landslag sem maður vill hafa. Það krefst ekki sérstakrar greindar eða færni.


Í Bandaríkjunum er mikið unnið með biofeedback með heilalínuriti (einnig kalla neurofeedback eða taugaendursvörun), meða annars vegna þess vísindaumhverfis sem byggst hefur í kringum NASA og háskólanna Cornell og UCLA í Kaliforníu.


Neurofeedback sameinar nýrri vísindaþekkingu innan taugasálfræði og tölvutækninnar og sígildra þjálfunaraðferða sem með aðstoð ”heilunar” veitir fólki yfirráð yfir eigin vandamálum.
Þá gengst maður undir allt sem fylgir slíku og í kjölfarið fylgir ýmislegt annað gott með, t.d. betra skap, betri svefn og innsýn í eigin gerðir, jákvæðar og neikvæðar.


Ef þú vilt vita meira um biofeedback geturðu farið inn á þessar síður:

www.eegspectrum.com
www.brainmaster.com

www.thoughttechnology.com


ÞJÁLFUN VIÐ HEILABLÓÐFALLI

Heilablóðfall eða heilaslag er afleiðing skyndilegrar og varanlegrar truflunar á blóðflæði til heilasvæða af völdum æðasjúkdóma. Blóðflæðitruflunin getur orsakast af stíflu í heilaslagæð af völdum blóðtappa (heiladrep) eða því að æð brestur og það fer að blæða í heilavefinn (heilablæðing). Í báðum tilvikum verða heilafrumur sem æðin nærir fyrir súrefnisskorti auk skorts á öðrum nauðsynlegum næringarefnum. Hluti heilafrumanna deyr, en starfsemi annarra raskast. Einkennin sem koma fram eru háð staðsetningu og stærð skemmdarinnar í heilanum. Oftast verður einhver bati eftir ákveðin tíma og er því haldið fram að líkamleg æfing auki og flýti fyrir bata.

Staðbundin skemmd á ákveðnum svæðum veldur starfstruflun á ákveðnu líkamssvæði eða á sérhæfðri líkamsstarfsemi. Hægra hvel heilans stjórnar vinstri hluta líkamans og öfugt. Auk þess að stjórna hægri hlið líkamans, hefur vinstra heilahvel að geyma málstöðvar heilans. Því getur skemmd í vinstra heilahveli valdið bæði lömun í hægri hlið líkamans og tjáskiptavandamálum.

Þegar hluti heilafrumanna deyr, raskast starfsemi heilafrumana i kring. Þetta sést á heilalínuriti sem aukin virkni delta- og theta-bylgja, og að dregið hafi úr blóðstreymi. Þegar  þessari virkni er breytt með æfingum er hægt að auka virknina og likamsstarfsemina til að bæta hreyfigetu og tjáskipti.


Við algjöra lömun, þegar ekki er hægt að hreyfa hendina með viljastyrðum hreyfingum, þá ”gleymir” heilinn henni oft. Þegar virknin í vöðvunum er mæld finnst oft smá vöðvavirkni sem ekki er meðvituð hjá sjúklingnum. Með EMG biofeedback (heilaritsþjálfun) verður þessi virkni gerð sýnileg fyrir sjúklinginn og þannig er hægt að þjálfa hana upp. Með tímanum er hægt að æfa ákveðna vöðvahreyfingu í hendinni þó svo að hún hafi verið lömuð i mörg ár.

 

Reynslan sýnir oft að ef eitt svæði er þjálfað fylgja fleiri svæði með!


Her kan du lese om en pasients erfaring med biofeedback:


 

 

HVAÐ KOSTAR TIMINN?

Biofeedback/neurofeedback æfing tekur um það bil einn til einn og hálfan tima, og kostar 600 NOK hver æfing.

HVAÐ MEÐ GISTINGU?

Medisinsk Helsesenter AS er með gott verð hjá hótelunum og gistiheimilum  i Ulvik. Hafðu samband svo sendum við þér verðskrár og upplysingar.
post@medhelse.no

MEIRA OM BIOFEEDBACK

Ef þú vil vita meira um biofeedback, þá getur þú skoðað þessar síður:
www.eegspectrum.com
www.brainmaster.com
www.neuroskills.com
www.thoughttechnology.com

ARTIKLER